A landslið karla - Breytingar á hópnum fyrir leikinn gegn Portúgal
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingar á hóp sínum er mætir Portúgal í undankeppni EM næstkomandi föstudag. Inn í hópinn koma þeir Arnór Smárason, Baldur Sigurðsson og Guðmundur Kristjánsson.
Koma þeir í stað Kolbeins Sigþórssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen sem eiga við meiðsli að stríða. Þá er óvíst með þátttöku Helga Vals Daníelssonar en kona hans á von á barni á næstu sólarhringum.