A landslið karla - Kjartan Henry valinn í hópinn
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hóp sínum er mætir Portúgal í undankeppni EM. Ólafur hefur valið Kjartan Henry Finnbogason í hópinn og kemur hann í stað Alfreðs Finnbogasonar sem á við meiðsli að stríða.
Leikurinn við Portúgal fer fram í Porto, föstudaginn 7. október.