U17 kvenna - Hópurinn valinn fyrir undankeppni EM í Austurríki
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp sinn er leikur í Austurríki í undankeppni EM. Leikið verður dagana 7. - 12. október og er Ísland í riðli með heimastúlkum, Kasakstan og Skotlandi.
Fyrsti leikur liðsins verður föstudaginn 7. október þegar leikið verður gegn Austurríki. Kasakstan verða mótherjarnir 9. október og Skotland 12. október.