U21 karla - Hópurinn gegn Englandi valinn
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Englendingum í undankeppni EM. Leikið verður á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 6. október, kl. 18:45. Þetta er þriðji leikur Íslendinga í þessari undankeppni en liðið vann Belga í fyrsta leik sínum en töpuðu gegn Noregi.
Fimm nýliðar eru í hópnum og leika 14 leikmenn, af 18 manna hóp, með félagsliðum hér á landi.
Englendingar mæta til leiks með sterkan hóp en þeir hafa leikið einn leik til þessa í undankeppninni þar sem þeir lögðu Aserbaídsjan á heimavelli, 6 - 0.
Miðasala á leikinn er hafin og fer hún fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is. Miðinn kostar 1.000 krónur fyrir fullorðna, 17 ára og eldri, en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.