Norræn dómaraskipti - Guðrún Fema og Rúna Kristín til Noregs
Guðrún Fema Ólafsdóttir og Rúna Kristín Stefánsdóttir munu halda til Noregs á næstu dögum og starfa þar við leik Stabæk og Klepp í efstu deild kvenna, 2. október næstkomandi. Guðrún Fema mun dæma leikinn og Rúna Kristín verður annar aðstoðardómara leiksins. Þetta verkefni er hluti af samstarfi knattspyrnusambandanna á Norðurlöndunum í norrænum dómaraskiptum.
Stabæk, sem eru ríkjandi meistarar, eru í 3. sæti deildarinnar í Noregi en Klepp er í 7. sæti. Leikið verður á Naddrud vellinum í Bærum.
Þetta er í fyrsta skiptið sem kvendómarar eru hluti af þessu verkefni af Íslands hálfu og er það til marks um að konur eru sífellt að auka hlut sinn í dómgæslu hér á landi.