Kristinn dæmir í Úkraínu
Kristinn Jakobsson verður við störf á fimmtudaginn þegar hann dæmir leik Vorskla Poltava frá Úkraínu og Hannover frá Þýskalandi. Leikurinn er í B riðli Evrópudeildar UEFA og verður leikinn í Úkraínu.
Aðstoðardómarar leiksins verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson. Aukaaðstoðardómarar verða Magnús Þórisson og Þorvaldur Árnason og Varadómari verður Erlendur Eiríksson.