24 landsleikir í september og október
September og október eru annasamir mánuðir hjá landsliðum Íslands en 24 landsleikir eru á dagskrá þessa tvo mánuði. A landslið karla og kvenna, U21 og U19 karla ásamt U19 kvenna léku landsleiki í september og voru þeir 11 talsins.
Landsleikirnir verða 13 í október en þá leika A landslið karla og kvenna, U21, U19, U17 karla og U17 kvenna.
Allir leikirnir eru í undankeppni EM og er því ljóst að nóg er framundan hjá landsliðsfólki Íslands og starfsmönnum landsliða.