2. október – Dagur án ofbeldis
Þann 2. október næstkomandi er fagnað degi baráttu fyrir tilveru án ofbeldis. Ofbeldi er grundvallarvandamál okkar tíma. Það er ekki aðeins líkamlegt og birtist í stríði og barsmíðum – það birtist einnig sem efnahagslegt ofbeldi, sálrænt, trúarlegt, kynferðislegt og kynþáttabundið ofbeldi.
Til að sýna samhug á táknrænan hátt verður mannlegt friðarmerki myndað á Klambratúni í Reykjavík þann 2. október kl. 20:00. Fjölmörg félagasamtök, innlend sem erlend, styðja við þessa táknrænu athöfn og vill KSÍ hvetja sem flesta til að taka þátt.