Kvennalandsliðið í 15. sæti á styrkleikalista FIFA
Íslenska kvennalandsliðið er í 15. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland fer upp um 2 sæti frá síðasta lista en Bandaríkin tróna sem fyrr á toppi listans en Þjóðverjar eru skammt undan.
Af mótherjum Íslands í undankeppni EM eru Norðmenn í 12. sæti og hafa aldrei verið lægra á listanum. Belgía er í 33. sæti listans, sæti á undan Ungverjum. Búlgaría er í 49. sæti og Norður Írar í 64. sæti.