U19 kvenna - Ísland tryggði sér efsta sætið
Stelpurnar í U19 lögðu stöllur sínar frá Wales í dag en leikurnn var lokaleikur liðsins í undankeppni EM. Leikið var á Fylkisvelli í frábæru veðri og urðu lokatölur 2 - 0 eftir að markalaust hafði verið í leikhléi. Ísland tryggði sér því efsta sætið í riðlinum með fullt hús stiga.
Íslenska liðið sótti meira í leiknum en tókst ekki að skapa sé mikið af tækifærum í fyrri hálfleik. Síðari hálfleikurinn var opnari en íslenska liðið hafði yfirhöndina. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir kom Íslendingum yfir á 74. mínútu með skoti úr aukaspyrnu og Elín Metta Jensen tryggði liðinu sigurinn með marki tveimur mínútum síðar.
Ísland og Wales voru fyrir leikinn örugg með sæti í milliriðlum en efsta sætið í riðlinum getur komið sér vel þegar raðað verður niður í styrkleikaflokka fyrir dráttinn í milliriðlum.
Í hinum leik riðilsins lögðu Slóvenar Kasakstan að velli með þremur mörkum gegn engu en leikið var á Varmárvelli. Slóvenar enduðu því í þriðja sæti riðilsins en Kasakstan rak lestina.