• mið. 21. sep. 2011
  • Landslið

Stelpurnar æfðu í Grindavík

Stelpurnar eftir æfingu í Grindavík
Stelpurnar-i-Grindavik

Kvennalandsliðið æfði í gær í Grindavík og voru móttökurnar að hætti heimamanna, höfðinglegar.  Eftir æfingu voru stelpurnar allar leystar út með kraftmikilli gjöf, flösku af Lýsi, sem vafalaust á eftir að koma sér vel fyrir leikinn gegn Belgíu í kvöld.

Leikurinn á Laugardalsvelli hefst kl. 19:30 í kvöld en miðasala á Laugardalsvelli hefst kl. 16:00.  Einnig er hægt að kaupa miða á www.midi.is og kostar 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri.

Stelpurnar eftir æfingu í Grindavík