Ísland mætir Belgíu - Byrjunarliðið tilbúið
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Belgum í undankeppni EM 2013. Leikið verður á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 19:30. Miðasala á leikinn er í fullum gangi og er í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is. Miðasala á Laugardalsvelli opnar á leikdag kl. 16:00.
Byrjunarliðið er þannig skipað:
Markvörður: Þóra Helgadóttir
Hægri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Sif Atladóttir og Katrín Jónsdóttir, fyrirliði
Vinstri bakvörður: Hallbera Gísladóttir
Tengiliðir: Katrín Ómarsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir og Dóra María Lárusdóttir
Hægri kantur: Fanndís Friðriksdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir
Fjórir leikmenn eru utan hóps að þessu sinni en það eru: Birna Kristjánsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Mist Edvardsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir.