Hittir einhver markslána í hálfleik á miðvikudag?
Í hálfleik á viðureign Íslands og Noregs í undankeppni EM kvenna 2013, sem fram fer laugardaginn 17. september, munu fimm heppnir vallargestir fá tækifæri til að spreyta sig í erfiðri en skemmtilegri þraut.
Þrautin felst í því að spyrna knetti frá vítateigsboganum (efst á boganum) með það fyrir augum að hitta þverslána. Hver og einn af þessum fimm fær aðeins eina tilraun, og vinningurinn ef það tekst er af glæsilegri tegundinni - ferð fyrir tvo til útlanda með Icelandair!
Þessir fimm aðilar verða dregnir út af handahófi í gegnum miðasölukerfi Miða.is. Aðeins verður dregið úr seldum miðum, þannig að þeir sem fá miða eftir öðrum leiðum (heiðursstúka, fjölmiðlar, samstarfsaðilar KSÍ), verða ekki í pottinum.
Hverjir verða dregnir út? Fylgist með ....