Ísland – Belgía – A passar gilda við innganginn
Handhafar A-passa 2011 frá KSÍ þurfa ekki að sækja miða fyrir landsleik Íslands og Belgíu í undankeppni EM A kvenna. Dugar að sýna passann við innganginn þegar mætt er á völlinn en leikið verður á Laugardalsvellinum. Frjálst sætaval er á leiknum sem hefst kl. 19:30, miðvikudaginn 21. september.