Þrír landsleikir á laugardaginn
Tvö íslensk kvennalandslið verða í eldlínunni næstkomandi laugardag en þrír landsleikir verða á dagskrá hér á landi þann dag. Ísland mun hefja keppni í undankeppni EM U19 kvenna en riðill Íslands er leikinn hér á landi. Ísland mætir Slóveníu á Vodafonevelli kl. 12:00 í fyrsta leik sínum og á sama tíma mætast, á Fjölnisvelli, Wales og Kasakstan.
Síðar um daginn, kl. 16:00, leika svo Ísland og Noregur í undankeppni EM A kvenna á Laugardalsvelli. Miðasala á þann leik er í gangi á midi.is en miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna, 17 ára og eldri, en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. Miðasala á Laugardalsvelli opnar svo kl. 12:00 á leikdag.
Það er um að gera fyrir knattspyrnuáhugafólk að sjá fullt af spennandi leikjum næstkomandi laugardag.