Sýnum lit!
Boðið verður upp á andlitsmálun fyrir viðureign kvennalandsliða Íslands og Noregs á Laugardalsvelli á laugardag. Leikurinn hefst kl. 16:00 og er um að gera að mæta tímanlega og láta mála íslenska fánann á kinnina og ennið, jafnvel að láta mála allt andlitið til að vera sem flottust!
Mætum snemma verum í bláum fötum og málum okkur blá, rauð og hvít!