A kvenna - Hópurinn valinn fyrir leiki gegn Noregi og Belgíu
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er mætir Noregi og Belgíu á Laugardalsvelli, 17. og 21. september. Leikirnir eru í undankeppni EM 2013 en Ísland hefur leikið einn leik til þessa í riðlinu, lögðu Búlgari fyrr á þessu ári.
Sigurður Ragnar velur 22 leikmenn og þar af eru tveir nýliðar. Einnig kemur Laufey Ólafsdóttir inn í hópinn eftir nokkuð hlé en hún lék síðast landsleik í september 2005.
Leikurinn við Noreg verður laugardaginn 17. september og hefst kl. 16:00 en leikið verður við Belga miðvikudaginn 21. september kl. 19:30.