Mark Kolbeins tryggði sigur á Kýpur
Íslendingar unnu langþráðan sigur í kvöld í undankeppni EM þegar Kýpverjar voru lagðir af velli á Laugardalsvelli í kvöld. Mark Kolbeins Sigþórssonar á 5. mínútu dugði til sigurs og eru Íslendingar með fjögur stig í fjórða sæti riðilsins.
Góð byrjun Íslendinga gaf af sér mark strax á 5. mínútu. Eftir góða sókn sendi Jóhann Berg Guðmundsson sendingu fyrir markið sem Kolbeinn afgreiddi í netið. Íslendingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og gengu til leikhlés með eins marks forystu.
Gestirnir mættu ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og áttu hættulegar sóknir sem annaðhvort strönduðu á varnarlínu Íslands eða Hannesi Þór Halldórssyni markmanni sem stóð sig frábærlega í sínum fyrsta landsleik. Stigunum þremur var svo vel fagnað í leikslok af leikmönnum, þjálfurum og 5.267 áhorfendum sem mættu á Laugardalsvöll í kvöld.
Næsti leikur Íslands er á útivelli gegn Portúgal ytra og er það síðasti leikur Íslands í undankeppni EM 2012. Fer hann fram föstudaginn 7. október. Portúgal er í efsta sæti riðilsins á markatölu með 13 stig. Danmörk og Noregur hafa einnig 13 stig en Norðmenn hafa leikið einum leik meira en hinar þjóðirnar. Danir höfðu betur gegn Norðmönnum í kvöld, unnu með tveimur mörkum gegn engu á Parken.