Ágúst Valves Jóhannesson hitti slána
Í hálfleik á viðureign Íslands og Kýpurs í undankeppni EM 2012 spreyttu fimm heppnir vallargestir sig í erfiðri en skemmtilegri þraut. Þrautin felst í því að spyrna knetti frá vítateigsboganum (efst á boganum) með það fyrir augum að hitta þverslána. Hver og einn af þessum fimm fékk aðeins eina tilraun, og vinningurinn af glæsilegri tegundinni - ferð fyrir tvo til Evrópu með Icelandair!
Þessir fimm aðilar eru dregnir út af handahófi í gegnum miðasölukerfi Miða.is og er aðeins dregið úr seldum miðum, þannig að þeir sem fá miða eftir öðrum leiðum (heiðursstúka, fjölmiðlar, samstarfsaðilar KSÍ), voru ekki í pottinum.
Það er skemmst frá því að segja að einn af þessum fimm hitti slána, en það var Ágúst Valves Jóhannesson með glæsilegri tilraun sem lenti ofan á slánni við mikinn fögnuð vallargesta. Ágúst Valves fékk að auki tolleringu frá varamönnum íslenska liðsins, sem voru úti á vellinum að fylgjast með.