Kristinn dæmir á Hampden Park
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Skotlands og Litháen í undankeppni EM en leikið verður á Hampden Park, þriðjudaginn 6. september. Aðstoðardómarar leiksins verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Sigurður Óli Þorleifsson og varadómari verður Magnús Þórisson.
Skotar og Litháar eru í I riðli og eru bæði með fjögur stig en Litháar hafa leikið einum leik meira en Skotar.