U21 karla - Ísland tekur á móti Belgíu á fimmtudaginn
Fyrsti leikur Íslands í undankeppni EM 2013 fer fram fimmtudaginn 1. september. Leikið verður við Belga á Vodafonevellinum og hefst leikurinn kl. 17:00. Ísland hefur leik í þessari keppni með þremur leikjum á heimavelli.
Næstu mótherjar Íslands verða svo Norðmenn en leikið verður við þá á Kópavogsvelli þriðjudaginn 6. september. Englendingar sæka okkur svo heim 6. október en leikið verður við þá á Laugardalsvelli.
Miðsala á leik Íslands og Belgíu er í fullum gangi og fer hún fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is. Miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri. Einnig er hægt að kaupa miða á leikinn gegn Norðmönnum.