Geturðu hitt slána frá vítateigsboganum?
Í hálfleik á viðureign Íslands og Kýpurs í undankeppni EM 2012, sem fram fer 6. september, munu fimm heppnir vallargestir fá tækifæri til að spreyta sig í erfiðri en skemmtilegri þraut.
Þrautin felst í því að spyrna knetti frá vítateigsboganum (efst á boganum) með það fyrir augum að hitta þverslána. Hver og einn af þessum fimm fær aðeins eina tilraun, og vinningurinn ef það tekst er af glæsilegri tegundinni - ferð fyrir tvo til Evrópu með Icelandair!
Þessir fimm aðilar verða dregnir út af handahófi í gegnum miðasölukerfi Miða.is. Haft verður samband við þá á í síðasta lagi á mánudag, þannig að þeir geti verið klárir í slaginn rétt fyrir hálfleik á þriðjudag.
Aðeins verður dregið úr seldum miðum, þannig að þeir sem fá miða eftir öðrum leiðum (heiðursstúka, fjölmiðlar, samstarfsaðilar KSÍ), verða ekki í pottinum.
Hverjir verða dregnir út fyrir leikinn við Kýpur? Fylgist með ....