U19 karla - Hópur valinn fyrir vináttulandsleiki við Eistland
Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir tvo vináttulandsleiki við Eistland. Leikið verður ytra og fara leikirnir fram laugardaginn 3. september og mánudaginn 5. september.
Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM en riðill Íslands verður leikinn á Kýpur. Auk heimamanna eru Noregur og Lettland í riðlinum.