KSÍ-passar gilda við innganginn á völlinn
KSÍ-passar munu gilda við innganginn á Laugardalsvöll á úrslitaleik KR og Vals í Valitor-bikar kvenna á laugardag. Handhafar þurfa því ekki að sækja miða sérstaklega fyrir leikinn, heldur sýna hann í hliðinu.
Leikurinn hefst kl. 16:00 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega.