Miðasala á Portúgal-Ísland í undankeppni EM 2012
Miðasala á viðureign Portúgals og Íslands í undankeppni EM 2012 er hafin, en liðin mætast í á Estadio do Dragao í Porto 7. október næstkomandi.
Hægt er að panta miða á leikinn hjá KSÍ og skal senda pantanir á ragnheidur@ksi.is eigi síðar en mánudaginn 22. ágúst nk. til að tryggja miða. Upplýsingarnar sem fylgja þurfa pöntuninni eru:
- Nafn
- Kennitala
- Heimilisfang
- Fjöldi miða
- Greiðslukortanúmer og gildistími (hafið samband við Ragnheiði ef óskað er eftir öðrum greiðslumáta)
- GSM númer
Miðinn á leikinn kostar ISK 2.500 (EUR 15).
Athugið að ekki eru seldir sérstakir barnamiðar.
Sendingarkostnaður (ábyrgðarsending, ISK 1.200) leggst ofan á miðaverð ef senda á miðana á heimilisfang erlendis og er miðaverð háð því að ekki verði verulegar gengisbreytingar.