Íslenskur dómarakvartett í París
Það verður íslenskur dómarakvartett á viðureign franska liðsins Paris Saint-Germain og FC Differdange 03 frá Lúxemborg í undankeppni Evrópudeildar þann 25. ágúst næstkomandi. Kristinn Jakobsson verður dómari leiksins.
Dómari | Kristinn Jakobsson |
Aðstoðardómari 1 | Sigurður Óli Þórleifsson |
Aðstoðardómari 2 | Gunnar Sverrir Gunnarsson |
4. dómari | Magnús Þórisson |