Gunnar Jarl og Andri dæmdu leik í Svíþjóð
Norræn dómaraskipti eru í fullum gangi í vikunni. Á mánudag starfaði Gunnar Jarl Jónsson sem dómari og Andri Vigfússon sem aðstoðardómari á leik Qviding og Angelholm í næstefstu deild í Svíþjóð. Þeir Marko Grönholm dómari og Mika Lamppu aðstoðardómari munu svo starfa á leik Selfoss og Þróttar í 1. deild karla í kvöld.
Sem fyrr hefur verið greint frá þá eru þessi verkefni hluti í samstarfi knattspyrnusambandanna á Norðurlöndunum í norrænum dómaraskiptum.