NM U17 karla - Íslensku liðin leika um gull og brons
Í dag verður leikið um sæti á Norðurlandamóti U17 karla og leika bæði íslensku liðin um verðlaunasæti á mótinu. Ísland og Danmörk leika til úrslita á mótinu en þjóðirnar mætast á Þórsvelli kl. 13:00. Allir aðrir leikir um sæti hefjast kl. 11:00 og þeirra á meðal er leikur Íslands og Noregs sem hefst kl. 11:00, einnig á Þórsvelli.
Um sjöunda sætið á mótinu leika svo Færeyjar og Svíþjóð og fer sá leikur fram á Grenivíkurvelli. Á sama tíma, eða kl. 11:00, leika svo England og Finnland á Akureyrarvelli en sá leikur er um fimmta sætið.
Árangur íslensku liðanna hefur verið virkilega góður á þessu móti og er fólk hvatt til þess að fjölmenna á vellina.