NM U17 karla - Ísland Norðurlandameistari
Ísland tryggði sér í dag Norðurlandameistaratitilinn hjá U17 karla þegar þeir lögðu Dani í úrslitaleik á Þórsvelli í dag. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland og skoraði Ævar Ingi Jóhannesson markið á 22. mínútu. Ísland 2 lék einnig í dag við Norðmenn í leik um 3. sætið en þar höfðu Norðmenn betur, 2 - 1. Samúel Kári Friðjónsson skoraði mark Íslands í leiknum og kom liðinu í forystu en Norðmenn svöruðu með tveimur mörkum.
Þetta er frábær árangur hjá íslensku liðunum og sannarlega eftirtektaverður. Mótherjarnir eru sterkir en Englendingar lögðu Finna í leik um 5. sætið og Svíar höfðu betur gegn Færeyingum í leiknum um 7. sætið.
Mynd: Páll Jóhannesson