A karla - Landsliðshópurinn gegn Ungverjum
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er mætir Ungverjum í vináttulandsleik, miðvikudaginn 10. ágúst. Leikið verður á Ferenc Puskas vellinum í Búdapest og hefst leikurinn kl. 17:45 að íslenskum tíma. Tveir nýliðar eru í hópnum að þessu sinni og eru þeir báðir markverðir.
Þetta er tíunda viðureign þjóðanna og hafa Ungverjar haft betur í sex leikjum en Íslendingar í þremur. Þjóðirnar voru saman í riðli í undankeppni fyrir HM 2006 og höfðu Ungverjar þá betur í báðum leikjum, heima og úti, 3 - 2.