U17 kvenna - Hópurinn heldur utan í kvöld
Stelpurnar í U17 halda til Sviss í kvöld en framundan er úrslitakeppni EM sem fram fer í Nyon. Aðeins fjórar þjóðir komast í þessa úrslitakeppni og leikur Ísland gegn núverandi handhöfum titilsins, Spánverjum, fimmtudaginn 28. júlí. Í hinum undanúrslitaleiknum eigast við Þýskaland og Frakkland. Úrslitaleikurinn og leikurinn um þriðja sætið fara svo fram, sunnudaginn 31. júlí.
Stelpurnar æfa í dag og eru fjölmiðlar boðnir velkomnir á æfinguna sem hefst kl. 10:45 á æfingasvæði Vals. Hópurinn heldur svo utan í kvöld og hefja undirbúning fyrir Spánarleikinn.
Nánari upplýsingar um hópinn og mótið má finna hér.