U19 karla - Sætur sigur á Svíum
Strákarnir í U19 lögðu Svía í öðrum leik sínum á Svíþjóðarmótinu sem fram fór í dag. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Ísland eftir að hafa leitt í leikhléi með einu marki. Það var Árni Vilhjálmsson sem skoraði bæði mörk Íslands í leiknum, það síðara úr vítaspyrnu.
Ísland leikur á laugardaginn lokaleik sinn á mótinu þegar þeir mæta Norðmönnum en þeir töpuðu gegn Wales í dag, 1 - 3.
Þegar ein umferð er eftir er Ísland með sex stig, Wales og Svíþjóð með þrjú og Noregur ekkert.