U19 karla - Stórsigur í fyrsta leik á Svíþjóðarmótinu
Strákarnir í U19 byrjuðu Svíþjóðarmótið með glans en þeir lögðu Walesverja örugglega í dag. Lokatölur urður 5 - 1 fyrir Íslands eftir að staðan í leikhléi var 2 - 1. Næsti leikur Íslands á mótinu er á fimmtudaginn þegar leikið verður við heimamenn í Svíþjóð.
Þeir Árni Vilhjálmsson og Oliver Sigurjónsson skoruðu mörk Íslands í fyrri hálfleiknum og komu þau á 30. og 34. mínútu. Íslenska liðið gerði svo út um leikinn á fjögurra mínútna kafla í seinni hálfleik. Arnar Aðalgeirsson hóf skothríðina á 53. mínútu og þeir Hjörtur Hermannsson og Hafþór Mar Aðalgeirsson bættu við mörkum með mínútu millibili, á 55. og 56. mínútu.
Eftir það náður Walesverjar að halda í horfinu en okkar strákar fögnuðu öruggum sigri í leikslok.