• þri. 19. júl. 2011
  • Landslið

U17 kvenna - Breytingar á hópnum

Byrjunarlið Íslands hjá U17 kvenna gegn Englandi í milliriðli EM í Póllandi, apríl 2011
U17-kvenna-Byrjunarlidid-gegn-Englandi-2011

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur gert tvær breytingar á hópnum er leikur í úrslitakeppni U17 kvenna í Sviss síðar í þessum mánuði.  Inn í hópinn koma þær Berglind Rós Ágústsdóttir úr Val og Ágústa Kristinsdóttir úr KA en þær koma í stað Elínar Mettu Jensen og Ingunnar Haraldsdóttur.

Úrslitakeppni EM - U17 kvenna