Þjálfaraferð til Barcelona
KÞÍ getur fengið fimm sæti í þjálfaraferð norska þjálfarafélagsins til Barcelona frá 1 .- 5. desember.
Fylgst verður með þjálfun hjá Espanol og Barcelonaog farið verður á leik FC Barcelona gegn Levante.
Verðið í ferðina er 8.995 NOK. Verðið miðast við að farið sé frá Noregi með norðmönnunum sem fara í ferðina. Hugsanlegt verður hægt að koma sér á eigin vegum til Barcelona og breytist verðið þá eitthvað. KÞÍ veitir upplýsingar um það þegar nær dregur.
Umsóknarfrestur er til 21 júlí næstkomandi. Félagsmenn KÞÍ ganga fyrri í ferðina ef fleiri sækja um en í ferðina komast.
Mikilvægt er að láta vita af áhuga sem allra fyrst í póstfang KÞÍ kthi@kthi.is