U17 kvenna - Hópurinn valinn fyrir úrslitakeppni EM
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn er tekur þátt í úrslitakeppni EM U17 kvenna í Sviss. Þessi úrslitakeppni fjögurra þjóða stendur frá 28. - 31. júlí og leikur Ísland gegn Spáni í undanúrslitum, fimmtudaginn 28. júlí, en Spánverjar eru núverandi handhafar þessa titils. Í hinum undanúrslitaleiknum leika Þjóðverjar og Frakkar.
SIgurvegarar undanúrslitaleikjanna leika svo til úrslita, sunnudaginn 31. júlí, en tapliðin etja kappi í leik um 3. sætið sama dag. Úrslitaleikurinn verður í beinni útsendingu á íþróttastöðinni Eurosport. Allir leikir keppninnar fara fram á Colovray í Nyon sem er skammt frá höfuðstöðvum UEFA.
Þorlákur velur 18 leikmenn tl fararinnar og þar af eru tveir nýliðar.