Norðurlandamót stúlkna - Byrjunarliðið gegn Frökkum
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Frökkum í dag á Norðurlandamót stúlkna sem fram fer í Finnlandi. Þetta er annar leikur liðsins en liðið gerði jafntefli í gær við Þjóðverja. Leikurinn í dag hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarliðið er þannig skipað:
Markmaður: Lísbet Sigurðardóttir
Hægri bakvörður: Guðrún Arnardóttir,
Vinstri bakvörður: Ella Dís Thorarensen
Miðverðir: Ingunn Haraldsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir
Tengiliðir: Hanna Kristín Hannesdóttir, Rakel Ýr Einarsdóttir og Hildur Antonsdóttir
Hægri kantur: Telma Þrastardóttir
Vinstri kantur: Hrafnhildur Fannarsdóttir
Framherji: Elín Metta Jensen
Fylgst verður með framvindu leiksins á Facebooksíðu KSÍ