Norðurlandamót stúlkna - Leikið gegn Þjóðverjum í dag
Norðurlandamót stúlkna hefst í dag í Finnlandi og mætir íslenska liðið því þýska í fyrsta leik sínum. Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður leikið á Äänekoski vellinum í Jyväskylä. Þorlákur Árnason hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í dag.
Markvörður: Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir
Hægri bakvörður: Heiða Ragney Viðarsdóttir
Vinstri bakvörður: Ella Dís Thorarensen
Miðverðir: Guðrún Arnardóttir og Glódís Perla Viggósdóttir
Tengiliðir: Sandra María Jessen, Rakel Ýr Einarsdóttir og Hildur Antonsdóttir
Hægri kantur: Telma Þrastardóttir
Vinstri kantur: Lára Einarsdóttir
Framherji: Elín Metta Jensen
Aðrar þjóðir sem eru í riðli með Ísland og Þýskalandi eru Frakkland og Noregur.