Áfrýjunardómstóll KSÍ - Fyrri úrskurður staðfestur
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur tekið fyrir áfrýjun Fram gegn Aga og úrskurðarnefnd KSÍ þar sem leikmaður 2. flokks Fram var dæmdur í bann til 10 vikna. Fram fór fram á að sá úrskurður yrði endurskoðaður. Það er hinsvegar skoðun áfrýjunardómstólsins að refsing áfrýjanda hafi verið hæfilega ákveðin í úrskurði Aga og úrskurðarnefndar og ber að staðfesta hana.