U17 karla - 54 leikmenn boðaðir til æfinga um helgina
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 54 leikmenn til æfinga um komandi helgi. Eru þetta undirbúningsæfingar fyrir Norðurlandamót U17 karla sem haldið verður hér á landi og hefst 2. ágúst.
Ísland mun verða með tvö lið á þessu móti en aðrar þjóðir eru: England, Færeyjar, Finnland, Noregur, Danmörk og Svíþjóð. Mótið fer fram á Norðurlandi og verður leikið á Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði, Húsavík og Sauðárkróki.