Viðurkenningar fyrir 50 landsleiki
Þegar A landslið karla kom saman á dögunum fengu þrír leikmenn afthenta viðurkenningu fyrir þann áfanga að hafa spilað 50 landsleiki. Þetta voru þeir Heiðar Helguson, Indriði Sigurðsson og Kristján Örn Sigurðsson.
Heiðar lék sinn fimmtugasta leik gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli í september á síðasta ári. Indriði lék sinn tímamótaleik gegn Íran í Teheran en Kristján Örn gegn Kýpur ytra í marsmánuði.