U21 karla - Hópurinn valinn fyrir úrslitakeppni EM
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt þá 23 leikmenn sem leika munu í úrslitakeppni EM í Danmörku. Mótið stendur yfir frá 11. júní til 25. júní en íslenski hópurinn heldur utan 8. júní og mætir Hvít Rússum í fyrsta leiknum 11. júní. Sá leikur verður leikinn í Árósum en seinni tveir leikir Íslands í riðlinum, gegn Sviss og Danmörku, fara fram í Álaborg.