Aðgöngumiðar á Ísland – Danmörk fyrir handhafa A-passa
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Danmörk afhenta miðvikudaginn 1. júní frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir eru afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
Hægt er að panta miða í síma 510-2900 á sama tíma, þ.e. þeir sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma. Athugið að takmarkað magn af miðum er í boði.
Leikurinn gegn Dönum í undankeppni EM fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 4. júní, og hefst kl. 18:45. Miðasala á leikinn er í fullum gangi í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is