Þorvaldur dæmir í Lúxemborg
Þorvaldur Árnason mun dæma vináttulandsleik á milli Lúxemborgar og Ungverjalands, föstudaginn 3. júní næstkomandi. Aðstoðardómarar Þorvalds í leiknum verða þeir Áskell Þór Gíslason og Frosti Viðar Gunnarsson.
Þorvaldur hefur verið á lista yfir FIFA dómara síðan 2009 en þetta er fyrsti A landsleikurinn sem hann dæmir.