Ísland - Danmörk 4. júní - Hópurinn tilkynntur
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag hópinn er mætir Dönum í undankeppni EM. Leikið verður á Laugardalsvelli, laugardaginn 4. júní, og hefst leikurinn kl. 18:45. Miðasala á leikinn er í fullum gangi og fer hún fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
Þessar þjóðir hafa mæst 21 sinni í gegnum tíðina og hafa Danir unnið 17 viðureignir og 4 leikjum hefur lokið með jafntefli. Fyrsti A landsleikur Íslands var einmitt gegn Dönum, en þá var leikið á Melavellinum þar sem Danir unnu 3-0 sigur.