Breytingar á knattspyrnulögunum 2011
Alþjóðanefnd FIFA hefur gert nokkrar breytingar á knattspyrnulögunum sem taka gildi 1. júní. Að venju munu þessar breytingar taka gildi á Íslandi við upphaf Íslandsmótsins 1. maí. Nákvæmur texti verður gefin út í nýrri útgáfu af knattspyrnulögunum um leið og endanlegur texti berst frá FIFA. Breytingarnar eru eftirfarandi:
- Heimilt er að hafa fleiri merkingar á knattspyrnuvöllum lögðu knattspyrnugrasi en merkingar fyrir knattspyrnu. Þær línur verða að vera í öðrum lit.
- Skýrt betur hver afstaða markstanga/markslár skuli vera við marklínu.
- Ef knöttur springur þegar vítaspyrna er tekin þá ber að endurtaka spyrnuna.
- Heimilt að leika í síðbuxum undir stuttbuxum. Þær skulu vera í sama lit og stuttbuxurnar.
- Þegar aukaknöttur kemur inn á leikvöllinn, eða aðskotahlutur ber einungis að stöðva leikinn ef hann hefur áhrif á leikinn.
- Notkun órofinna lausra hálsklúta (snoods) telst hættuleg og er því óheimil.
- Einnig voru nokkrar orðalagsbreytingar (ekki efnislegar) gerðar á lögunum.
Frekari skýringar á túlkun rangstöðureglunnar
Alþjóðanefnd FIFA hefur einnig skýrt nánar með hvaða hætti sóknarmaður, sem er í rangstöðu, telst geta haft áhrif á varnarmann. Ef sóknarmaður er í rangstöðu, án þess að gera tilraun til að leika knettinum, en staða hans hefur þau áhrif að varnarmaðurinn bregst við í flýti til að varna því að knötturinn fari til sóknarmannsins, þá telst hann hafa áhrif á varnarmanninn. Í því tilfelli ber að refsa eins og um refsiverða rangstöðu sé að ræða.
Hér að neðan má sjá frekari útskýringar á þessum breytingum.