Færeyskir dómarar dæma í Lengjubikarnum um helgina
Færeyskir dómarar verða hér á landi um helgina og eru að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir færeysku deildina sem hefst 9. apríl. Þeir munu einnig koma við sögu í tveimur leikjum í Lengjubikar karla um helgina.
Leik KR og Þórs, laugardaginn 26. mars í Egilshöll, mun Ransin Djurhuus dæma og honum til aðstoðar verða Johnleif Gerðisá og Thorvald Petersen. Daginn eftir mun svo Petur Reinert dæma leik Hauka og Grindavíkur í Kórnum. Þeir Jan á Líðarenda og Andrew Christiansen munu verða aðstoðardómarar þess leiks.