Njarðvík uppfyllir kröfur leyfiskerfisins 2011
Leyfiskerfi KSÍ nær ekki til félaga í 2. deild karla, en engu að síður óskuðu Njarðvíkingar eftir því að undirgangast kerfið, eins og síðast þegar þeir léku í 2. deild. Leyfisstjórn hefur því metið leyfisgögn Njarðvíkur líkt og gögn annarra félaga.
Skemmst er frá því að segja að Njarðvík uppfyllir allar kröfur leyfisreglugerðarinnar sem gerðar eru til félaga í 1. deild karla. Þessi beiðni Njarðvíkur er merki um mikinn metnað innan félagsins og ljóst er að umgjörð og rekstur félagsins er á traustum grunni.