ÍR óskar eftir aðstoðarþjálfara fyrir 5. flokk karla
Knattspyrnudeild Íþróttafélags Reykjavíkur óskar eftir að ráða aðstoðarþjálfara fyrir 5. flokk karla. Hlutverk aðstoðarþjálfara verður að aðstoða þjálfara 5. flokks karla og fylgja flokknum í öll þau verkefni sem flokkurinn tekur þátt í. Umsækjandi verður að hafa KSÍ III eða hafa þónokkura starfsreynslu í þjálfun yngri flokka. Allar umsóknir skulu sendast á irknattspyrna@hotmail.com
Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Halldóri Þ. Halldórssyni yfirþjálfara knd. ÍR, 891 6320 eftir kl 15:00 virka daga.