Kristinn dæmir í Pétursborg í Evrópudeild UEFA
Kristinn Jakobsson mun fimmtudaginn 24. febrúar, dæma leik Zenit frá Rússlandi og Young Boys frá Sviss en þetta er seinni leikur liðanna í 32. liða úrslitum Evrópudeildar UEFA. Búast má við hörkuleik í Pétursborg en Young Boys unnu fyrri leikinn á sínum heimavelli, 2 - 1.
Með Kristni á þessum leik verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson aðstoðardómarar. Fjórði dómari verður Erlendur Eiríksson og aukaaðstoðardómarar verða þeir Magnús Þórisson og Þóroddur Hjaltalín.